Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-115

Miðvikudagurinn 7. október 2026

Íslenska ríkið (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

gegn

A (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Opinber starfsmaður. Stjórnsýsla. Stjórnvaldsákvörðun. Meðalhóf. Miskabætur. Samþykkt

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 13. júlí 2026 leitar íslenska ríkið leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 18. júní sama ár í máli nr. 398/2025: Íslenska ríkið gegn A. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Mál þetta lýtur annars vegar að kröfu gagnaðila um ógildingu ákvörðunar lögreglustjórans á [...] um breytingu á störfum og verksviði gagnaðila og miskabætur vegna þeirrar ákvörðunar en hins vegar að kröfu gagnaðila um miskabætur vegna meðferðar lögreglustjórans á úttekt sálfræði- og ráðgjafarstofu á kvörtun um áreitni og ofbeldi af hálfu gagnaðila í garð þáverandi undirmanns hans.

4. Með héraðsdómi var fallist á kröfu gagnaðila um ógildingu á ákvörðun lögreglustjórans og honum dæmdar miskabætur að fjárhæð 2.000.000 króna. Héraðsdómur taldi að með ákvörðuninni hefðu orðið verulegar breytingar á störfum gagnaðila, hún hefði ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum, verið ótímabundin og meira íþyngjandi en nauðsyn bar til. Þá hefði ákvörðunin vegið að æru og persónu gagnaðila, þannig að hann ætti rétt á miskabótum úr hendi leyfisbeiðanda. Eins hefði gagnaðili orðið fyrir ófjárhagslegu tjóni vegna afhendingar úttektar, sem innihélt persónuupplýsingar um viðkvæm málefni hans, til þess undirmanns sem kvartað hafði undan háttsemi hans. Ætti hann því einnig rétt á miskabótum af þeim sökum. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms og tók fram að þrátt fyrir að heimilt hefði verið að veita undirmanni gagnaðila aðgang að upplýsingum og gögnum þess hluta málsins, sem hófst með kvörtun hennar og laut ákvæðum reglugerðar nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, sætti sá réttur hennar takmörkunum sem leiddu af lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga vegna hagsmuna annarra.

5. Til stuðnings beiðni um áfrýjunarleyfi vísar leyfisbeiðandi meðal annars til þess að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína og að niðurstaða í því geti haft áhrif á skýringu almennra stjórnunarheimilda forstöðumanna ríkisstofnana. Meðalhófs hafi verið gætt við töku hinnar umþrættu ákvörðunar og niðurstaða Landsréttar sé því röng að efni til. Þá tekur leyfisbeiðandi fram að allar stjórnunarstöður við embætti lögreglustjórans hafi verið fullmannaðar þegar ákvörðunin var tekin. Loks telur leyfisbeiðandi að með því að fallast á kröfu um ógildingu ákvörðunar lögreglustjórans hafi Landsréttur farið út fyrir valdsvið sitt samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar.

6. Að virtum gögnum málsins verður litið svo á að dómur í því kunni að hafa verulegt almennt gildi um þau atriði sem leyfisbeiðandi byggir á þannig að fullnægt sé skilyrðum 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar