Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2026-33

Þriðjudagurinn 12. maí 2026

A (Jóhannes Ásgeirsson lögmaður)

gegn

Hafnarfjarðarkaupstað, D og E (Guðmundur Siemsen lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Börn. Vistun barns. Forsjársvipting. Miskabætur. Friðhelgi fjölskyldu. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Sigurður Tómas Magnússon, Ása Ólafsdóttir og Skúli Magnússon.

2. Með beiðni 16. mars 2026 leitar A leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 26. febrúar sama ár í máli nr. 1026/2024: A gegn Hafnarfjarðarkaupstað, D og E og Hafnarfjarðarkaupstaður gegn A. Gagnaðilar leggjast gegn beiðninni.

3. Mál þetta má rekja til íhlutunar barnaverndarnefndar gagnaðila Hafnarfjarðarkaupstaðar í fjölskyldulíf leyfisbeiðanda með aðgerðum á tímabilinu 26. október 2015 til 5. maí 2023. Barnaverndarmálið hófst þegar dóttir leyfisbeiðanda lýsti ætluðum kynferðisbrotum hans gagnvart sér. Voru börn hans í kjölfarið vistuð utan heimilis hjá gagnaðilum D og E, fyrst með samþykki móður barnanna en síðar án samþykkis foreldra. Meðan sonur leyfisbeiðanda var vistaður utan heimilis greindi hann einnig frá ætluðum kynferðisbrotum leyfisbeiðanda gagnvart sér. Leyfisbeiðandi var ákærður fyrir ætluð kynferðisbrot í mars 2017 en sýknaður af sakargiftum í nóvember sama ár. Gagnaðili Hafnarfjarðarkaupstaður höfðaði forsjársviptingarmál gegn leyfisbeiðanda og eiginkonu hans árið 2017. Málinu lauk með því að þau voru svipt forsjá barna sinna með dómi Hæstaréttar 10. mars 2020 í máli nr. 58/2019. Þau fengu forsjá barna sinna að nýju með dómsátt í maí 2023 í máli sem þau höfðuðu til endurheimtu forsjárinnar. Mál þetta varðar kröfu leyfisbeiðanda um viðurkenningu á sameiginlegri bótaskyldu gagnaðila vegna þess tjóns sem hann kveðst hafa orðið fyrir við meðferð barnaverndarmálsins sem hafi leitt til þess að hann var sviptur forsjá barna sinna. Þá gerir hann kröfu um miskabætur sameiginlega úr hendi gagnaðila.

4. Með héraðsdómi voru gagnaðilar sýknaðir af kröfu um viðurkenningu á sameiginlegri bótaskyldu en gagnaðila Hafnarfjarðarkaupstað gert að greiða leyfisbeiðanda 5.000.000 króna í miskabætur. Landsréttur staðfesti sýknu af kröfu um viðurkenningu á sameiginlegri bótaskyldu en sýknaði gagnaðila Hafnarfjarðarkaupstað einnig af miskabótakröfu leyfisbeiðanda. Kom meðal annars fram í dómi Landsréttar að ekkert benti til annars en að þær ákvarðanir gagnaðila Hafnarfjarðarkaupstaðar sem fólu í sér íhlutun í fjölskyldulíf leyfisbeiðanda hefðu í öllum tilvikum verið efnislega réttmætar á þeim tíma sem þær voru teknar, enda ítrekað staðfestar af æðra settum stjórnvöldum og dómstólum svo og í öllum aðalatriðum í samræmi við vilja barnanna.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi þar sem sambærilegt álitaefni hafi ekki komið til kasta dómstóla. Vísar hann til þess að héraðsdómur og Landsréttur hafi komist að mismunandi niðurstöðum og því sé nauðsynlegt að fá fordæmisgefandi dóm Hæstaréttar um sakarefnið. Þá byggir hann á því að niðurstaða Landsréttar sé efnislega röng og að rökstuðningur réttarins sé um margt ófullnægjandi. Loks varði sakarefnið sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans.

6. Að virtum gögnum málsins er hvorki unnt að líta svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar