Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

Mál nr. 2024-20

Þriðjudagurinn 26. mars 2024

B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

gegn

A (Jóhannes S. Ólafsson lögmaður)

Lykilorð

Fjárslit. Hafnað. Kæruleyfi. Opinber skipti. Óvígð sambúð

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Karl Axelsson.

2. Með beiðni 22. febrúar 2024 leitar B leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 2. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 2. mgr. 133. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., til að kæra úrskurð Landsréttar 9. sama mánaðar í máli nr. 864/2023: A gegn B. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Málið varðar kröfu gagnaðila um viðurkenningu á endurgreiðslu tiltekinna fjármuna úr hendi leyfisbeiðanda við opinber skipti til fjárslita þeirra á milli. Krafan er meðal annars gerð á þeim grundvelli að fjármunir sem gagnaðili greiddi í útborgun við kaup á fasteign hafi verið eftirstöðvar slysabóta sem hann fékk greiddar árið 2018.

4. Héraðsdómur hafnaði kröfu gagnaðila og taldi að hann hefði ekki leitt að því nægar líkur að framlög hans til kaupa og reksturs umræddrar fasteignar réttlættu að vikið yrði frá skráðum eignarhlutföllum. Landsréttur féllst hins vegar á kröfu hans eins og kröfugerð var þar háttað en hann hafði lækkað fjárhæð kröfunnar. Í dómi Landsréttar kom fram að eftir almennum reglum fjármunaréttar gildi sú meginregla við fjárslit að þinglýstar eignarheimildir og opinber skráning eigna veiti líkindi fyrir eignarrétti. Þá sagði að ekki yrði annað ráðið en að framlög aðila til eignamyndunar og rekstrar heimilis á sambúðartíma hefðu almennt verið því sem næst jöfn að undanskildum slysabótum gagnaðila. Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 kæmu bætur fyrir líkamstjón ekki til skipta við fjárslit milli hjóna að því marki sem telja mætti að þeim hefði ekki verið eytt. Landsréttur taldi að sjónarmið að baki reglunni ættu einnig við um fjárskipti sambúðarfólks, enda eðli bótanna að bæta framtíðartekjutap þess sem yrði fyrir tjóni. Í málinu var talið sannað að gagnaðili hefði lagt til umræddra fasteignakaupa hluta af slysabótunum sem svaraði til þeirrar fjárhæðar sem hann krafðist að fá sérstaklega greidda úr hendi leyfisbeiðanda við fjárskiptin.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrskurður í málinu hafi fordæmisgildi um hvernig líta beri á slysabætur við fjárslit sambúðarfólks og þýðingu 3. mgr. 18. gr. skaðabótalaga við þær kringumstæður. Þá sé sá annmarki á dómi Landsréttar að ekki sé tekið til þess tillit að gagnaðili hafi við sölu á fyrri fasteign aðila fengið til ráðstöfunar fjárhæð sem var sambærileg þeirri sem hann lagði fram við kaup á síðari fasteign. Með því hefði hann fengið endurgreidda þá fjárhæð sem tekin var af slysabótunum og ráðstafað til kaupa síðari fasteignarinnar. Gagnaðili hefði eytt þeim fjármunum sem í hans hlut komu við sölu fyrri fasteignarinnar enda ekki í neinni vinnu svo mánuðum skipti. Þá byggir leyfisbeiðandi á því að niðurstaða málsins hafi grundvallarþýðingu þar sem að óbreyttu muni leyfisbeiðandi standa uppi nær eignalaus en gagnaðili fái nær allar eignir búsins. Slík niðurstaða sé ósanngjörn eftir nærri 30 ára sambúð.

6. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið varði mikilsverða almannahagsmuni eða geti haft fordæmisgildi þannig að fullnægt sé skilyrðum 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.

https://landsrettur.is/domar-og-urskurdir/domur-urskurdur/?id=b816901d-9bd9-47db-9f8d-0e0e58c9e7b3&verdictid=6fa12865-f02e-453d-9596-dc24073ab117

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar