Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-99
Þriðjudagurinn 8. september 2026
Félag pípulagningameistara (Hilmar Gunnarsson lögmaður)
gegn
íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður) og A (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Lykilorð
Kæruleyfi. Frávísun. Aðild. Stjórnvaldsákvörðun. Lögvarðir hagsmunir. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Karl Axelsson.
2. Með beiðni 24. júní 2026 leitar Félag pípulagningameistara leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að kæra úrskurð Landsréttar 10. sama mánaðar í máli nr. 351/2026: Félag pípulagningameistara gegn íslenska ríkinu og A. Gagnaðili A leggst gegn beiðninni en gagnaðili íslenska ríkið leggur í mat Hæstaréttar hvort skilyrði séu fyrir því að veita kæruleyfi.
3. Leyfisbeiðandi höfðaði mál á hendur gagnaðilum og krafðist ógildingar á ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 10. júní 2024 um útgáfu meistarabréfs í pípulögnum til handa gagnaðila A. Með úrskurði héraðsdóms var máli leyfisbeiðanda vísað frá dómi. Héraðsdómur féllst þannig á kröfu gagnaðila íslenska ríkisins um frávísun málsins á þeim grunni að leyfisbeiðandi hefði ekki beint dómkröfum sínum að sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, sem tók hina umþrættu ákvörðun, en hún hafði ekki sætt endurskoðun á æðra stjórnsýslustigi. Vísaði héraðsdómur í þeim efnum til þess að stjórnvaldsákvörðun yrði ekki hnekkt fyrir dómi nema viðeigandi stjórnvald ætti aðild að úrlausn dómsmálsins. Þá taldi héraðsdómur hagsmuni leyfisbeiðanda of almenna og fjarlæga til að teljast lögvarðir í skilningi einkamálaréttarfars. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms með vísan til forsendna hans.
4. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur. Niðurstaða réttarins um skort leyfisbeiðanda á lögvörðum hagsmunum sé í ósamræmi við dóm Hæstaréttar 7. júní 1988 í máli nr. 124/1986 sem birtur er á bls. 820 í dómasafni réttarins það ár. Þá verði að líta til þess að dómstólar hafi fallist á að aðilar geti gætt hagsmuna starfsstéttar sinnar að einhverju leyti. Niðurstaða Landsréttar um aðild íslenska ríkisins sé auk þess í ósamræmi við dómaframkvæmd. Leyfisbeiðandi byggir einnig á því að niðurstaða málsins hafi fordæmisgildi fyrir starfsemi og hlutverk leyfisbeiðanda og annarra fagfélaga sem hafi lögbundinn umsagnarrétt við útgáfu meistarabréfa í iðngreinum. Þá hafi niðurstaðan um skort á lögvörðum hagsmunum einnig veruleg áhrif á starfsemi leyfisbeiðanda og aðkomu hans að útgáfu meistarabréfa. Það sé því mikilvægt að Hæstiréttur taki afstöðu til þess hvaða réttaráhrif umsagnarréttur félagsins hafi og hvort fagfélag geti borið undir dómstóla stjórnvaldsákvörðun sem það telur brjóta gegn lögum og hagsmunum félagsmanna.
5. Að virtum gögnum málsins verður ekki talið að úrlausn um kæruefnið geti haft fordæmisgildi þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar sömu málsgreinar á grundvelli þess að úrskurður Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni. Beiðni um kæruleyfi er því hafnað.