Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-90

Mánudagurinn 21. september 2026

Suðurnesjabær (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)

gegn

A (Leó Daðason lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Börn. Barnavernd. Forsjá. Miskabætur. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 23. júní 2026 leitar Suðurnesjabær leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. sama mánaðar í máli nr. 338/2025: A gegn Suðurnesjabæ. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Málið lýtur að miskabótakröfu gagnaðila á hendur leyfisbeiðanda vegna þeirrar ákvörðunar barnaverndarþjónustu leyfisbeiðanda að svipta gagnaðila forsjá dætra sinna á grundvelli 2. mgr. 32. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Forsjársviptingin var reist á því að Þjóðskrá hefði breytt skráningu forsjár þannig að stúlkurnar væru forsjárlausar af öðrum ástæðum en greindi í 1. mgr. ákvæðisins.

4. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sýknaður af kröfum gagnaðila. Landsréttur komst að öndverðri niðurstöðu. Byggt var á því að barnaverndarþjónustu leyfisbeiðanda hefði ekki verið rétt að líta svo á að stúlkurnar væru forsjárlausar í skilningi 2. mgr. 32. gr. barnaverndarlaga vegna breyttrar skráningar Þjóðskrár þannig að uppfyllt væru skilyrði til að taka við forsjánni án frekari málsmeðferðar. Þá yrði ekki litið fram hjá íþyngjandi eðli ráðstöfunarinnar og því að barnaverndarþjónusta leyfisbeiðanda hefði haft vitneskju um hverjir foreldrar stúlknanna væru og að þau dveldust hér á landi. Við þær aðstæður hefði borið að kanna til hlítar hvort stúlkurnar gætu í reynd talist forsjárlausar og hefðu ekki staðið rök til að horfa fram hjá meginreglum um málsmeðferð í barnaverndarmálum. Ákvörðunin hefði því verið ólögmæt og voru gagnaðila dæmdar miskabætur úr hendi leyfisbeiðanda.

5. Leyfisbeiðandi byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi. Í því reyni í fyrsta skipti fyrir Hæstarétti með beinum hætti á túlkun og beitingu 2. mgr. 32. gr. barnaverndarlaga. Mikilvægt sé að fá úr því skorið hvort unnt sé að beita ákvæðinu þegar börn eru skráð forsjárlaus í Þjóðskrá. Úrlausn um að hvaða marki barnaverndaryfirvöldum sé rétt og skylt að byggja á opinberri skráningu Þjóðskrár hafi almennt gildi fyrir stjórnsýslu barnaverndarmála á Íslandi. Ólíkar niðurstöður milli dómstiga sýni mikilvægi þess að fá leiðsögn Hæstaréttar um mörk skaðabótaábyrgðar stjórnvalda í barnaverndarmálum. Loks byggir leyfisbeiðandi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur.

6. Að virtum gögnum málsins verður ekki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómurinn sé bersýnilega rangur, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar