Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hæstiréttur Íslands

nr. 2026-119

Fimmtudagurinn 29. október 2026

Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir (Ívar Pálsson lögmaður)

gegn

H.J. Sveinssyni ehf. (Sigurður Jónsson lögmaður)

Lykilorð

Áfrýjunarleyfi. Landamerki. Jörð. Eignarréttur. Sönnun. Hafnað

Ákvörðun Hæstaréttar

1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Með beiðni 22. júlí 2026 leita Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 25. júní sama ár í máli nr. 335/2024: Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir gegn H.J. Sveinssyni ehf. og gagnsök. Gagnaðili leggst gegn beiðninni.

3. Mál þetta varðar landamerki jarðarinnar Svarfhóls gagnvart jörðinni Sólheimatungu, í Stafholtstungum í sveitarfélaginu Borgarbyggð. Ágreiningur aðila lýtur nánar tiltekið að því hvort tvær tilgreindar landspildur, svokölluð engjastykki, sem óumdeilt er að liggja innan landamerkja jarðarinnar Sólheimatungu samkvæmt landamerkjabréfi frá árinu 1921, tilheyri jörðinni Svarfhóli. Leyfisbeiðendur eru eigendur og ábúendur Svarfhóls en gagnaðili er eigandi Sólheimatungu.

4. Með dómi Landsréttar var niðurstaða héraðsdóms um sýknu gagnaðila af kröfum leyfisbeiðenda staðfest. Landsréttur taldi að fyrirliggjandi gögn um umræddar jarðir og viðskipti með þær, allt frá síðari hluta 19. aldar, veittu ekki næga stoð fyrir því að engjastykkin tilheyrðu jörðinni Svarfhóli. Gögn málsins bentu þannig ekki til þess að hjáleigan Norðurkot, sem var í eigu ábúanda á Svarfhóli, hefði átt útskipt land úr landi Sólheimatungu. Miða yrði við að eigandi Norðurkots hefði aðeins átt tiltekna eignarhlutdeild í Sólheimatungu, þótt sameigendur þeirrar jarðar hefðu gengið út frá því að ákveðnir hlutar sameignarlandsins, þar með talið hin umþrættu engjastykki, hefðu aðeins verið til afnota fyrir eiganda Norðurkots. Auk þess yrði ekki ráðið af fyrirliggjandi gögnum að engjastykkjunum hefði verið haldið eftir við sölu þáverandi eiganda Svarfhóls á Norðurkoti á fyrri hluta 20. aldar til þáverandi eiganda Sólheimatungu.

5. Leyfisbeiðendur telja að veita beri áfrýjunarleyfi með vísan til 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þau byggja það í fyrsta lagi á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur, meðal annars um gildisskilyrði fyrir landskiptum samkvæmt Landsbrigðabálki Jónsbókar og um heimild eða skyldu til að ganga til landskipta samkvæmt landskiptalögum nr. 43/1913. Þá telji Landsréttur ranglega að eignarhald þrætulandsins hafi fylgt með kaupum á Norðurkoti árin 1929 og 1942. Eins hafi Landsréttur metið ranglega gildi og þýðingu annars vegar landamerkjabréfs fyrir Sólheimatungu frá 1921 og hins vegar yfirlýsingar um landamerki jarðarinnar Svignaskarðs, gagnvart Sólheimatungu og Svarfhóli, frá 2012. Í öðru lagi byggja leyfisbeiðendur á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi, meðal annars um þýðingu landskiptagerða samkvæmt lögum nr. 43/1913 eða síðari landskiptalögum og um skýringu á gildi og réttarstöðu landamerkjabréfa og landamerkjayfirlýsinga, einkum í ljósi nýlegra breytinga á lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna. Niðurstaða Landsréttar valdi í því sambandi óvissu um réttaráhrif fyrrgreindrar yfirlýsingar um landamerki Svignaskarðs. Í þriðja lagi telja leyfisbeiðendur málið varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína þar sem það snúi að eignarhaldi á landi sem þau hafi talið að fylgdi jörðinni við kaup á henni.

6. Að virtum gögnum málsins verður hvorki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi né að það varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðenda í skilningi 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991. Þá verður ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. málslið sömu málsgreinar. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því hafnað.

Hæstiréttur Íslands

Hafa samband

Sími: 510 3030
Netfang: haestirettur@haestirettur.is

Opnun­ar­tímar

Skrifstofa Hæstaréttar er opin frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 9:00 - 12:00 föstudaga.

Heim­il­is­fang

Hæstiréttur
Dómhúsinu við Arnarhól
Lindargötu 2
101 Reykjavík

Kennitala: 650169-4419
Reikningsnúmer: 0101-26-69580

Samfé­lags­miðlar

Instagram


Rafræn vöktun
Vöktun á dómhúsi Hæstaréttar