Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-122
Mánudagurinn 21. september 2026
Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari)
gegn
X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Kynferðisbrot. Nauðgun. Ólögmæt nauðung. Kynferðisleg áreitni. Börn. Sönnun. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 30. júní 2026 leitar X leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 4. júní sama ár í máli nr. 40/2024: Ákæruvaldið gegn X. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.
3. Með ákæru var leyfisbeiðanda annars vegar gefin að sök nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa, án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft samræði og önnur kynferðismök við brotaþola, sem þá var 13 ára. Háttsemi leyfisbeiðanda var í ákæru talin varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hins vegar var leyfisbeiðanda gefin að sök kynferðisleg áreitni samkvæmt 199. gr. sömu laga með því að hafa í nokkur skipti á sex mánaða tímabili áreitt annan brotaþola kynferðislega með því að þukla að minnsta kosti fjórum sinnum á brjóstum hennar innanklæða og reyna tvisvar að færa hönd að kynfærum hennar, rassskellt hana einu sinni og segja að hún væri með flottan rass.
4. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sakfelldur samkvæmt fyrsta ákærulið að því undanskildu að háttsemi hans var einvörðungu talin varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga um kynferðisbrot gegn barni en ekki fela í sér nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. laganna. Með dómi Landsréttar 20. febrúar 2025 var niðurstaða héraðsdóms staðfest um þá háttsemi sem leyfisbeiðanda var gefin að sök í fyrsta ákærulið en rétturinn heimfærði hana jafnframt til 1. mgr. 194. gr. laganna. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu leyfisbeiðanda samkvæmt öðrum ákærulið var staðfest. Refsing leyfisbeiðanda var jafnframt þyngd úr tveggja ára í þriggja ára og sex mánaða fangelsi.
5. Leyfisbeiðanda var veitt áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar með ákvörðun 19. júní 2025 nr. 2025-66. Með dómi Hæstaréttar 18. mars 2026 í máli nr. 34/2025 var dómur Landsréttar ómerktur og málinu vísað aftur til réttarins til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Með fyrrgreindum dómi Landsréttar 4. júní sama ár var leyfisbeiðandi sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni samkvæmt fyrsta kafla ákæru. Þá var sakfelling samkvæmt öðrum ákærulið staðfest. Refsing leyfisbeiðanda var ákveðin á ný fangelsi í þrjú ár og sex mánuði.
6. Leyfisbeiðandi byggir á því að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi og efni. Niðurstaðan sé byggð á reikulum framburði brotaþola, en brotaþolar og leyfisbeiðandi hafi verið ein til frásagnar um atvik. Rangt mat hafi verið lagt á samskipti aðila á samskiptamiðlum og rannsókn verið ábótavant. Þá vísar hann til þess að hann hafi verið sýknaður af nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga í héraði en sakfelldur í Landsrétti og því beri að veita honum áfrýjunarleyfi samkvæmt 4. málslið 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Raunar hafi Hæstiréttur veitt honum áfrýjunarleyfi á þeim grundvelli með ákvörðun réttarins nr. 2025-66 en ekki dæmt málið á þeim grunni sem ákvörðunin byggði á. Loks hafi úrslit málsins fordæmisgildi.
7. Að virtum gögnum málsins og fyrri meðferð þess fyrir Hæstarétti verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn réttarins um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu leyfisbeiðanda byggir að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verður ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti, sbr. 5. mgr. 215. gr. laganna. Að öllu virtu verður talið ljóst að áfrýjun til réttarins muni ekki verða til þess að breyta dómi Landsréttar, sbr. lokamálslið 4. mgr. sömu greinar. Samkvæmt þessu er beiðni um áfrýjunarleyfi hafnað.