Hæstiréttur Íslands
nr. 2026-123
Þriðjudagurinn 22. september 2026
Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)
gegn
X (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð
Áfrýjunarleyfi. Kynferðisbrot. Stórfelldar ærumeiðingar. Miskabætur. Hafnað
Ákvörðun Hæstaréttar
1. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla standa að ákvörðun þessari hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Sigurður Tómas Magnússon.
2. Með beiðni 30. júní 2026 leitar X leyfis Hæstaréttar, á grundvelli 1. mgr., sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að áfrýja dómi Landsréttar 28. maí sama ár í máli nr. 515/2025: Ákæruvaldið gegn X. Leyfisbeiðanda var birtur dómurinn 2. júní sama ár. Ákæruvaldið leggst gegn beiðninni.
3. Leyfisbeiðandi var ákærður fyrir kynferðisbrot og stórfelldar ærumeiðingar gegn barnsmóður og fyrrum sambýliskonu sinni með því að hafa 4. júní 2022 birt færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann hótaði að birta myndefni af henni á nánar tilgreindri vefsíðu og með því að hafa þann sama dag birt fimm kynferðislegar myndir af henni sem sýndu hana nakta, ásamt texta, á samskiptaforritinu Facebook. Með birtingu myndanna og meðfylgjandi texta var leyfisbeiðandi talinn hafa móðgað hana og smánað og sært blygðunarsemi hennar. Háttsemin var talin varða við 1. og 2. mgr. 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
4. Með héraðsdómi var leyfisbeiðandi sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga og gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 800.000 krónur í miskabætur. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu leyfisbeiðanda og heimfærslu brotanna. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að ekki léki vafi á að allar myndirnar væru þess eðlis að falla undir 1. mgr. 199. gr. a almennra hegningarlaga. Niðurstaða héraðsdóms um refsingu leyfisbeiðanda og miskabætur var jafnframt staðfest.
5. Leyfisbeiðandi byggir málskotsbeiðni sína á a- og b-liðum 1. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Í þeim efnum vísar hann til þess að ætluð háttsemi hans verði ekki felld undir 199. gr. a eða 233. gr. b almennra hegningarlaga. Ekki hafi í framkvæmd reynt á túlkun hugtaksins „nekt“ í 199. gr. a en héraðsdómur og Landsréttur hafi túlkað ákvæðið að þessu leyti of rúmt. Myndirnar sem um ræði sýni hvorki nekt né kynferðislega háttsemi heldur hafi kynfæri verið afmáð af myndunum og þeir líkamshlutar sem séu berir séu þeir sömu og oft megi sjá bera á almannafæri. Þá sé ekkert kynferðislegt við myndirnar. Loks telur leyfisbeiðandi hina dæmdu refsingu of þunga. Meðal þess sem beri að horfa til við ákvörðun refsingar sé að hin ætlaða birting hafi varað í skamman tíma og fengið takmarkaða útbreiðslu.
6. Skilja verður beiðni leyfisbeiðanda svo að hann telji áfrýjun lúta að atriði sem hafi verulega almenna þýðingu og að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að efni, sbr. 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Að virtum gögnum málsins verður ekki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu eða mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum 2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr. 88/2008. Þá eru ekki efni til að beita heimild 3. málsliðar 4. mgr. sömu lagagreinar. Beiðninni er því hafnað.