Fara beint í efnið
Geislavarnir ríkisins Forsíða
Geislavarnir ríkisins Forsíða

Geislavarnir ríkisins

Skermun rýma þar sem notuð eru röntgentæki

Almennt

Leyfishafi röntgentækis þarf að tryggja og sýna fram á að rými þar sem röntgentæki er notað sé hannað þannig að almenningur utan þess verði ekki fyrir geislun umfram 0,25 mSv/ári.

Geislavarnir ríkisins fara yfir teikningar og samþykkja skermun í samræmi við áætlaða notkun rýmis. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna yfirferðar á teikningum í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar. Eindregið er mælt með að teikningar af nýrri eða breyttri geislunaraðstöðu séu sendar stofnuninni til álits og yfirferðar á hönnunarstigi og áður en framkvæmdir hefjast.

Tannröntgentæki

Geislavarnir hafa sett fram þá meginreglu fyrir hefðbundin tannröntgentæki við stól að kröfur til skermunar teljist uppfylltar ef veggir í þeim hluta herbergis sem frumgeisli getur fallið á hafa skermunargildi sem jafnast á við 0,25mm blýs. Dæmi um slíkt svæði umhverfis tannröntgentæki má sjá á mynd 1.

Fyrir öll önnur röntgentæki, þar á meðal kjálkabreiðmyndatæki (OPG) og sneiðmyndatæki hjá tannlæknum (CBCT), þarf almennt meiri skermun.

Mynd 1: Svæði þar sem frumgeisli getur fallið á umhverfis tannröntgentæki (rauð lína).

Mynd 1: Svæði þar sem frumgeisli getur fallið á umhverfis tannröntgentæki við stól (rauð lína).

Kröfur til teikninga

Til að Geislavarnir ríkisins geti samþykkt skermun þarf að skila teikningu og eftirfarandi upplýsingar þurfa að vera merktar á teikningu:

  • Dagsetning og höfundur

  • Heimilisfang og hæð

  • Fyrirhuguð starfsemi (t.d. tannlæknastofa)

  • Starfsemi í aðliggjandi rýmum, einnig hæðir fyrir ofan og neðan ef um það er að ræða og fjarlægð í næstu hús

  • Byggingarefni í veggjum herbergja sem um ræðir

  • Gerð og þykkt skermunarefna í veggjum, lofti og gólfi (eftir því sem við á)

    • þykkt og gerð steypu sé hún hluti af skermun

    • þykkt blýs og hæð í veggjum

  • Skermun í hurðum og gluggum þegar við á

  • Staðsetning röntgentækja og gerð (t.d. hefðbundið eða sneiðmyndatæki)

Geislavarnir gera ekki kröfu um að teikningar sem sýni skermun séu útbúnar af byggingarfulltrúa, arkitekt eða sambærilegum aðila en öll ofangreind atriði þurfa að koma fram á teikningu.

Nánari lesning

Um skermun geislunaraðstöðu röntgentækja er fjallað í 65. grein reglugerðar nr. 1299/2015.

Ítarlegri leiðbeiningar um skermun geislunaraðstöðu, þar á meðal upplýsingar um skermunargildi byggingarefna, má finna í eftirfarandi ritum:

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169