Röntgendagurinn 2022
8. nóvember 2022
Röntgendagurinn, International Day of Radiology, er í dag, 8. nóvember
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4ypOK3zf381Cw55GwxLnPY/f9400cd65422351ca63ec10cd2c15198/Screenshot_2023-03-09_at_11.38.50.png?w=50&fm=webp&q=80)
![idor_2022](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4ypOK3zf381Cw55GwxLnPY/f9400cd65422351ca63ec10cd2c15198/Screenshot_2023-03-09_at_11.38.50.png?w=774&fm=webp&q=80)
Röntgendagurinn, International Day of Radiology, er í dag, 8. nóvember. Markmiðið með Alþjóðlega röntgendeginum er að vekja athygli á mikilvægi sjúkdómsgreiningar og meðferðar með röntgengeislum. Í ár er áherslan á að byggja upp aukna vitund um gildi röntgengeislunar í meðferð og umönnun sjúklinga ásamt því að bæta skilning almennings á mikilvægu hlutverki röntgenlækna og geislafræðinga í heilbrigðisþjónustu.
Það var 8. nóvember 1895 sem Wilhelm Conrad Röntgen áttaði sig á tilvist röntgengeisla. Röntgengeislar hafa síðan umbylt heilbrigðisþjónustu, bæði með tilliti til greininga sjúkdóma og meðferða vegna sjúkdóma.