Fara beint í efnið
Geislavarnir ríkisins Forsíða
Geislavarnir ríkisins Forsíða

Geislavarnir ríkisins

Nýtt rit: Geislálag starfsfólks – yfirlit fyrir árin 2014 - 2024

15. september 2026

Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu um eftirlit með geislaálagi starfsfólks fyrir tímabilið 2014 – 2024.

Árlega báru á bilinu 390 – 507 einstaklingar geislamæla á tímabilinu 2014 – 2024 og störfuðu þeir hjá samtals 59 fyrirtækjum og stofnunum. Um 90% þeirra unnu við störf tengd heilbrigðisþjónustu og dýralækningum.

Árlegt meðalgeislaálag geislastarfsmanna árin 2014 – 2024 var á bilinu 0,07 mSv – 0,17 mSv. Fyrir starfsfólk með mælanlegt geislaálag var árlegt meðalgeislaálag á bilinu 0,27 – 0,37 mSv.

Árið 2017 hófst reglubundin notkun fingurgeislamæla við eftirlit með hlutgeislaálagi á húð starfsmanna sem vinna með geislavirk efni í læknisfræði, samhliða undirbúningi að gangsetningu nýs jáeindaskanna. Árlegt meðalhlutgeislaálag á húð var á bilinu 0,2 – 10,4 mSv árin 2017 – 2024.

Í skýrslunni er einnig birt samantekt á gögnum um geislaálag starfsfólks á tímabilinu 1986 – 2024. Meðalársgeislaálag starfsfólks með mælanlegt geislaálag lækkaði á tímabilinu 1986 – 2024 og fór frá því að vera um 0,6 mSv á árunum um og eftir 1986 í það að vera um 0,3 mSv á tímabilinu 2014 – 2024.

Á mynd 1 má sjá fjölda starfsmanna sem báru einstaklingsmæla á tímabilinu 1986 – 2024 og meðalársgeislaálag þeirra, fyrir alla starfsmenn og fyrir starfsmenn með mælanlegt ársgeislaálag E>0.

Mynd 1: Meðaltal ársgeislaálags E og fjöldi starfsmanna sem báru einstaklingsmæla árin 1986 – 2024. Gögn sýnd fyrir alla starfsmenn sem báru einstaklingsmæla og fyrir starfsmenn með mælanlegt ársgeislaálag E>0.

Mynd 1: Meðaltal ársgeislaálags E og fjöldi starfsmanna sem báru einstaklingsmæla árin 1986 – 2024. Gögn sýnd fyrir alla starfsmenn sem báru einstaklingsmæla og fyrir starfsmenn með mælanlegt ársgeislaálag E>0.

Geislavarnir ríkisins hafa jafnframt eftirlit með geislaálagi flugáhafna í millilandaflugi. Á tímabilinu 2014 – 2024 skiluðu tveir til þrír flugrekendur á hverju ári gögnum um áætlað geislaálag flugáhafna í millilandaflugi. Árlegur fjöldi starfsmanna í flugáhöfnum sem gögn bárust fyrir á tímabilinu var á bilinu 1265 – 3738. Árlegt meðalgeislaálag flugáhafnarmeðlima á þessu tímabili var á bilinu 1,0 – 2,6 mSv. Starfsmenn í millilandaflugi eru langfjölmennasti hópur geislastarfsmanna og var meðalársgeislaálag þeirra hærra en annarra hópa geislastarfsmanna á Íslandi á tímabilinu 2014 – 2024.

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169