Niðurstöður mælinga Geislavarna ríkisins á geislavirkni í umhverfi á árunum 2021–2022 birtar
31. mars 2026
Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu um niðurstöður mælinga á geislavirkni í umhverfinu á árunum 2021-2022. Kerfisbundin vöktun á geislavirkni í umhverfi á Íslandi hófst seint á níunda áratug síðustu aldar. Sérstök áhersla er á reglulegar mælingar á geislavirku sesíni (Cs-137) í matvælum og umhverfi.

Langtímavöktun veitir verðmætar upplýsingar sem sýna stöðugleika og þróun á magni Cs-137 í sýnum. Niðurstöðurnar sýna fram á að magn geislavirkra efna fer hægt minnkandi. Cs-137 hefur verið mælt reglubundið og kerfisbundið í lofti, úrkomu, kúamjólk (ferskri og mjólkurdufti), lambakjöti, sjó, þangi og fiski.
Helsta niðurstaða skýrslunnar er að árlegt meðaltal Cs-137 er stöðugt að lækka í öllum mældum sýnum. Öll mæligildi fyrir matvæli eru vel innan marka sem sett eru í íslenskum reglugerðum. Cs-137 í sjávarvatni er vel innan alþjóðlegra viðmiðunarmarka.
Niðurstöðurnar sem birtar eru í þessari skýrslu byggja á mæliaðferðum og greiningarferlum sem lýst er í skýrslunni GR 25:04 – Quality Control of Updated Gamma Spectroscopy Measurement and Analysis Methods in the Icelandic Radiation Safety Authority Monitoring Program.
Skýrslurnar eru aðgengilegar með því að fylgja tenglunum hér að neðan. Skýrslan GR 25:04 er eingöngu aðgengileg á ensku.