Fara beint í efnið

Leki í Sellafield hefur ekki áhrif á Íslandi

6. desember 2023

Fjölmiðlar hafa fjallað um áhyggjur vegna öryggismála hjá bresku kjarnorkuvinnslustöðinni í Sellafield.

Sellafield

Í grein í The Guardian er sagt frá leka geislavirkra efna úr sílóum í jarðveg á svæðinu.

Það hefur lengi verið þekkt að sprungur hafa verið í sílóunum í Sellafield. Sprungurnar hafa valdið leka en erfitt hefur verið að finna þær og laga. Úrbætur á þessu hafa staðið yfir í fjölda ára og er ætlað að auka öryggi við geymsluna. Í tengslum við úrbæturnar hefur takmörkuð losun geislavirkra efna út í umhverfið verið heimiluð. Bæði Kjarnorkuöryggis- og Umhverfisstofnun Bretlands hafa eftirlit með framkvæmdunum og fylgjast náið með að losunin sé innan þess sem heimilað hefur verið.

Áhrif losunarinnar í jarðveg er staðbundin og hefur ekki áhrif á Íslandi. Það er mat Geislavarna að miðað við fyrirliggjandi upplýsingar þá séu engar líkur á að hægt verði að mæla áhrif þessarar heimiluðu losunar hér við land. Geislavarnir ríkisins munu áfram fylgjast grannt með fréttaflutningi og gangi mála í Sellafield.

Geislavarnir ríkisins mæla reglubundið geislavirkni í sjó við Ísland í samstarfi við Hafrannsóknastofnun sem sér um sýnatöku.

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169