Geislavarnir ríkisins taka þátt í evrópska verkefninu AURORad
14. október 2026
Stóru samstarfsverkefni, AURORad, sem ætlað er að stuðla að framförum í gæðum og öryggi við læknisfræðilega notkun jónandi geislunar, var formlega hleypt af stokkunum með upphafsfundi í Helsinki 13. – 14. október 2026.

Verkefnið heitir fullu nafni Advancing Unified Roadmap on implementation of the strategic agenda for medical ionising Radiation applications. Það hefur hlotið styrk að fjárhæð um 11,5 milljónir evra, eða sem nemur um 1,6 milljörðum íslenskra króna, úr EU4Health áætlun Evrópusambandsins.
Verkefnið nær yfir fimm ára tímabil, því er stýrt af geislavarnastofnun Finnlands (Säteilyturvakeskus, STUK) og 109 stofnanir frá 29 löndum taka þátt.
Geislavarnir ríksins taka þátt í einu verkefni, T5.3 Individual justification, í vinnupakka 5 (WP5): Clinical auditing and justification.
Nánar má lesa um verkefnið á vefsíðu þess AURORad project | Säteilyturvakeskus STUK.