Geislavarnir og gæðastjórnunarkerfi
16. mars 2026
Nýlega sendu samtök forstjóra geislavarnastofnana í Evrópu (HERCA) frá sér yfirlýsingu um nauðsyn þess að, þar sem geislun er notuð, séu geislavarnir fléttaðar inn í gæðastjórnunarkerfið.

Þar er undirstrikað að Geislavarnastofnanir í Evrópu skuli hvetja notendur jónandi geislunar í læknisfræði til þess að innleiða gæðastjórnunarkerfi, eða þar sem gæðastjórnunarkerfi eru nú þegar til staðar, að ítreka nauðsyn þess að geislavarnir séu hluti af heildarkerfinu.
Í öllum evrópulöndum eru lög um geislavarnir byggð á tilmælum Alþjóða geislavarnaráðsins (ICRP). Þó notkun gæðastjórnunarkerfa sé víðast hvar ekki skylda er það álit HERCA að gæðastjórnunarkerfi auðveldi leyfishöfum að uppfylla kröfur geislavarna. Gæðastjórnunarkerfi auka líka öryggi sjúklinga með því að fækka atvikum og minnka alvarleg áhrif þeirra.
Reynsla eftirlitsstofnana í Evrópu, auk greiningar á atvikum, hefur sýnt að oft má rekja það til bresta í yfirstjórn og skorts á yfirsýn ef geislavarnastaðlar eru ekki uppfylltir.
Gæðastjórnunarkerfi þurfa að innihalda ferli réttlætingar og bestunar við notkun jónandi geislunar á sjúklinga, og einnig ferla sem tryggja geislavarnir starfsfólks og umhverfis. Hlutverk og ábyrgð allra þurfa að vera skýrt skilgreind.
Gæðastjórnunarkerfni þurfa að vera lifandi, aðgangur starfsmanna að þeim þarf að vera greiður og þeir þurfa að skilja mikilvægi þess að nota kerfið.
Geislavarnastofnanir eru hvattar til þess að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að notendur jónandi geislunar í læknisfræði flétti geislavarnir inn í gæðastjórnunarkerfi sín og stuðli þar með að öruggari notkun geislunar og bættum hag sjúklnga.
Skýrsluna má lesa í heild sinni á vefsíðu HERCA.