Fara beint í efnið

Röntgentæki í læknisfræði - Námskeið fyrir ábyrgðarmenn og tæknimenn

Til að vera ábyrgðarmaður eða tæknimaður í læknisfræði verður að ljúka þessu námskeiði.

Fyrirkomulag námskeiðs

Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum:

  • fyrri hlutinn er fjarnám, sem þátttakendur sinna sjálfir á sínum tíma,

  • seinni hlutinn er annað hvort staðkennsla í Reykjavík eða fjarkennsla í gegnum Teams.

Áherslur námskeiðsins

Á námskeiðinu er farið yfir eftirfarandi:

  • Grundvallarleiðbeiningar Alþjóðageislavarnaráðsins í samhengi við læknisfræðilega notkun

  • Lagaumhverfi: skyldur og hlutverk leyfishafa, ábyrgðarmanna, tæknimanna og notenda

  • Kröfur til búnaðar og aðstöðu

  • Mat á áhættu vegna geislunar, landsviðmið um geislaálag sjúklinga og eftirlit með geislaálagi starfsmanna

  • Geislamælibúnaður og gæðaeftirlit með röntgentækjum, aðferðum og geislaálagi

  • Áherslur Geislavarna ríkisins hverju sinni

Efni námskeiðsins er lagað að þátttakendum hverju sinni.

Eftir námskeiðið   

Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að þekkja:   

  • lög og reglugerðir um geislavarnir

  • skyldur sínar

  • kröfur til geislatækja, gæðaeftirlits og aðstöðu

  • leiðir til að leggja mat á geislaálag sjúklinga í einstökum rannsóknum

  • áherslur Geislavarna ríkisins varðandi þá starfsemi sem þeir tengjast 

Sjá nánar um kröfur til ábyrgðarmanna vegna notkunar geislatækja og geislavirkra efna (pdf)

Próf

Námskeiðinu lýkur með prófi. Hlekkur á prófið er sendur á þátttakendur fljótlega eftir að kennslustund lýkur. Þátttakendur fá viku til að taka prófið og geta því tekið prófið á þeim tíma sem þeim hentar.

Til að ljúka námskeiðinu þarf að ná 80% árangri á prófinu.

Verð námskeiðsins

26.000 krónur

Ef dagsetning liggur ekki fyrir er hægt að skrá sig á biðlista.

Námsefni - hluti 1, fjarnám

Þátttakandi fer yfir efnið á sínum hraða og klárar sjálfur yfirferð á efninu áður en seinni hluti byrjar.

Námsefnið samanstendur af:

  • veffyrirlestrum á íslensku,

  • myndböndum frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni

  • lesefni á vefsíðu Geislavarna

Áætlaður tími fyrir þennan hluta er 3-4 klukkustundir.

Námsefni læknisfræði

Námsefni læknisfræði

Námsefni læknisfræði

Námsefni - hluti 2, kennslustund

Þátttakendur skrá sig annað hvort í fjarkennslu eða staðkennslu (Reykjavík).

Námsefnið samanstendur af glærum sem fyrirlesarar fara yfir í kennslustund. Glærur eru sendar til þátttakanda fyrir kennslustund.

Áætlaður tími fyrir þennan hluta er 3-4 klukkustundir.

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169