20. júní 2025
Veiði á Pollinum við Akureyri
Af gefnu tilefni vill Fiskistofa benda á að Pollurinn við Akureyri er á ósasvæði Eyjafjarðarár.
Veiði laxfiska á Pollinum við Akureyri er því samkvæmt ósamati innan umdæmis Veiðifélags Eyjafjarðarár. Veiði er því háð leyfi veiðifélagsins og þeim reglum sem veiðifélagið setur um veiðina í nýtingaráætlun. Allar upplýsingar um veiðileyfi fyrir laxfiska í Pollinum frá landi má nálgast hjá Veiðifélagi Eyjafjarðarár.
Athugið að:
Reglur Veiðifélags Eyjafjarðarár heimila ekki veiði á göngusilung úr bát á Pollinum.
Veiðifélag Eyjafjarðarár gerir kröfur til veiðimanna í þeirra umdæmi að sleppa skuli allri bleikju sem veiðist.
Þessar aðgerðir eru taldar nauðsynlegar með tilliti til stöðu bleikjustofns árinnar og í samræmi við tilmæli í umsögn Hafrannsóknastofnunar vegna fram lagðrar nýtingaráætlunar Veiðifélags Eyjafjarðarár fyrir sjóbleikju.
