5. maí 2026
Úthlutun aflamarks í grásleppu til nýliða fiskveiðiárið 2025/2026
2026
Grásleppuveiðar
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í grásleppu til nýliða. Alls var úthlutað 155 tonnum sem skiptist jafnt á 31 umsækjanda sem fékk hver um sig 5.000 kíló á skip.
Þeir sem fengu úthlutað aflamarki í þessari úthlutun og hafa ekki strandveiðileyfi geta haldið til veiða, að því tilskildu að skipið hafi almennt veiðileyfi.
Hægt er að sjá úthlutun nýliðakvótans inni á gagnasíðum Fiskistofu.

