26. ágúst 2026
Úthlutun aflamarks fyrir fiskveiðiárið 2026/2027
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki á fiskveiðiskip fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 og fengu 308 skip í eigu 260 aðila úthlutað.
Heildarúthlutun er rúm 275 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er rúm 158 þúsund þorskígildistonn en var tæp 160 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 41 þúsund þorskígildistonn og lækkar um 3 þúsund þorskígildistonn milli ára.
Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:
Samherji Ísland hf. 8,68%
Brim hf. 7,76 %
Ísfélag hf. 6,59%
Fisk Seafood ehf. 6,31%
Vísir ehf. 4,41%
Skip með hæstu úthlutunina:
Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.031 þorskígildistonn
Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 8.648 þorskígildistonn
Þerney RE 1 (2960), Brim hf. með 7.313 þorskígildistonn
Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna í reglugerð, á gagnasíðum Fiskistofu og í samantekt fiskveiðiáramóta.
Tilkynningar um úthlutanir hafa verið sendar í stafrænt pósthólf útgerða á ísland.is.

