27. ágúst 2025
Úthlutun aflamarks fyrir fiskveiðiárið 2025/2026
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki á fiskveiðiskip fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 og fengu 456 skip í eigu 377 aðila úthlutað.
Heildarúthlutun er rúm 287 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er rúm 160 þúsund þorskígildistonn en var tæp 168 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er tæp 44 þúsund þorskígildistonn og hækkar um 5 þúsund þorskígildistonn milli ára.
Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:
Brim hf. 9,16%
Samherji Ísland hf. 8,58%
Ísfélag hf. 6,61%
Fisk Seafood ehf. 6,36%
Vísir ehf. 4,18%
Skip með hæstu úthlutunina:
Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.430 þorskígildistonn
Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 9.109 þorskígildistonn
Drangey SK 2 (2893), FISK-Seafood ehf. með 6.442 þorskígildistonn
Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna í reglugerð, á gagnasíðum Fiskistofu og í samantekt fiskveiðiáramóta.
Tilkynningar um úthlutanir hafa verið sendar í stafrænt pósthólf útgerða á island.is.

