Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

4. september 2026

Uppboðsskylda og breyting á veiðiheimildum í makríl í norskri lögsögu

2026
Fiskistofa

Á næstu dögum er gert ráð fyrir að samanlagður afli íslenskra skipa í norskri lögsögu nái 6.405 tonnum, sem er það magn sem heimilt er að veiða án þess að aflinn sé boðinn upp hjá Norges Sildesalgslag SA.

Uppboðsskylda afla

Þegar samanlagður afli íslenskra skipa í norskri lögsögu hefur náð 6.405 tonnum gildir eftirfarandi:

  • Afli sem veiddur er eftir að því marki hefur verið náð skal boðinn upp hjá Norges Sildesalgslag SA.

  • Uppboðsskyldan tekur til alls afla sem veiddur er í efnahagslögsögu Noregs eftir að viðmiðunarmagninu hefur verið náð.

Breytingar á heimildum til veiða

Fiskistofa hefur jafnframt breytt heimildum skipa til veiða á makríl í norskri lögsögu.
Skipum er nú heimilt að nýta aflaheimildir sínar í:

  • norskri lögsögu,

  • færeyskri lögsögu,

  • íslenskri lögsögu,

  • og alþjóðlegri lögsögu.

Þegar skip hefur fullnýtt þær makrílheimildir sem því eru ætlað í norskri lögsögu mun afli sem veiddur er umfram heimildir dragast frá öðrum aflaheimildum skipsins.