Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

23. apríl 2025

Umsóknarfresti strandveiðileyfa er lokið

2025
Strandveiðileyfi

Umsóknarfresti um leyfi til strandveiða lauk í gær, 22. apríl og nú þegar hafa um 700 leyfi verið veitt. Af þeim tæplega 900 umsóknum sem bárust á enn eftir að afgreiða um 200 umsóknir.

Þessi mikli fjöldi umsókna hefur í för með sér aukið álag á stofnunina og því mun starfsfólk Fiskistofu ekki taka við símtölum vegna strandveiða föstudaginn 25. apríl heldur einbeita sér að úrlausn óafgreiddra umsókna.

Útgerðaraðilar eru því hvattir til að senda fyrirspurnir og erindi í tölvupósti á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is sé eitthvað óljóst varðandi þeirra umsókn.

Við þökkum fyrir skilninginn.