1. september 2026
Umsókn um leyfi til selveiða
2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2027.
Í reglugerð um bann við selveiðum segir að selveiðar séu óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.
Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.
Umsóknir sendast í tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með bréfpósti á heimilisfangið: Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2026.

