Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

30. apríl 2026

Strandveiðar hefjast á mánudaginn

2026
Strandveiðar

Strandveiðar hefjast á mánudaginn og af því tilefni hefur verið gefin út reglugerð með 10.650 tonna heildarmagni í þorski.

Fiskistofa vill af þessu tilefni minna á eftirfarandi atriði:

  • Hægt er að skoða útgefin strandveiðileyfi á gagnasíðum Fiskistofu

  • Strandveiðileyfi skips fellur niður ef það er selt eða leigt eða ef eignarhald eiganda skips eða útgerðar breytist

  • Hægt er að óska eftir frestun á gildistöku á strandveiðileyfi með því að senda beiðni þess efnis í tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is

    • Ekki er hægt að óska eftir breytingu eftir að leyfið hefur tekið gildi né flýta gildistöku.

  • Afladagbók á að skila áður en skip leggst að bryggju til löndunar.

    • Þar sem sending afladagbókar getur misfarist þá mun Fiskistofa senda vikulega út leiðbeiningabréf á pósthólf útgerða á Ísland.is ef afladagbók berst ekki á réttum tíma.

    • Með því að upplýsa jafn óðum um að afladagbækur hafi ekki borist, viljum við koma til móts við skipstjórnarmenn og útgerðaraðila og bæta upplýsingagjöf.