9. mars 2026
Skipti á aflamarki - tilboð óskast
Skiptimarkaðurinn opnar í dag, mánudaginn 9. mars 2026 kl. 12:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 12:00 mánudaginn 16. mars 2026.
Auglýst er samkvæmt 7. grein reglugerðar um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026. Óskað er eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski.
Fisktegund | Þorskígildisstuðlar | Magn í boði |
|---|---|---|
Gullkarfi | 0,54 | 591.000 kíló |
Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 522,12 kr/kg.
Tilboð er sent í gegnum tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.
Ekkert lágmarkstilboð.
Verð fyrir úthlutun aflaheimilda er samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.
Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.

