Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

03.12.2024

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

Skiptimarkaðurinn opnar í dag, þriðjudaginn 3. desember 2024 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 10. desember 2024.

Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski. Samkvæmt 8. grein reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025.

Fisktegund

Þorskígildisstuðlar

Magn í boði

Djúpkarfi

0,66

201.400 kíló

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 499,11 kr/kg.

Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.

  • Lágmarkstilboð er 50% í þorskígildum talið.

  • Hver úthlutun aflaheimilda kostar 15.400 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.

net hendur