Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

26. júní 2025

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

2025
Skipti á aflamarki

Skiptimarkaðurinn opnar í dag, fimmtudaginn 26. júní 2025 kl. 11:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 11:00 fimmtudaginn 3. júlí 2025.

Auglýst er samkvæmt 8. grein reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025. Óskað er eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski.

Fisktegund

Þorskígildisstuðlar

Magn í boði

Íslensk Sumargotsíld

0,19

5.478 tonn

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 501,29 kr/kg.

Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.

  • Ekkert lágmarkstilboð.

  • Verð fyrir úthlutun aflaheimilda er samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.