Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

14. júlí 2026

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

2026
Skipti á aflamarki

Skiptimarkaðurinn opnar í dag, þriðjudaginn 14. júlí 2026 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2026.

Auglýst er samkvæmt 7. grein reglugerðar um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026. Óskað er eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski.

Fisktegund

Þorskígildisstuðlar

Magn í boði

Síld

0,14

4.256 tonn

Rækja við Snæfellsnes

0,88

24.380 kg

Makríll

0,17

1.663.988 kg

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 567,26 kr/kg.

Tilboð er sent í gegnum tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.

  • Ekkert lágmarkstilboð.

  • Verð fyrir úthlutun aflaheimilda er samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.