13. febrúar 2026
Reglugerð um strandveiðar er komin út
Innviðaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um strandveiðar.
Fiskistofa hvetur þá sem hyggja á strandveiðar að huga tímanlega að því að skip hafi haffæri og að allar skráningar séu réttar.
Helstu breytingar frá fyrra ári:
Umsóknartímabil er frá 1. mars til og með 14. apríl.
Skip þarf að hafa haffæri þegar sótt er um.
Sá einstaklingur sem ætlar að róa þarf að eiga meira en 50% eignarhlut í skipinu eða meira en 50% eignarhlut í lögaðila sem á skipið.
Eignarhald skips ræðst af skráningu í skipaskrá Samgöngustofu.
Eignarhald lögaðila miðast við skráningu raunverulegs eiganda hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.
Séu skilyrði leyfis ekki uppfyllt er hægt að sækja aftur um fyrir lok umsóknarfrests.
Hver einstaklingur eða lögaðili getur aðeins fengið eitt strandveiðileyfi. Eigandi lögaðila getur ekki átt aðild að fleiri en einu leyfi.
Leyfi fellur sjálfkrafa niður ef skip er selt, leigt, eða ef eignarhald breytist á tímabilinu.
Sama gildir ef gerðir eru samningar sem færa stjórn eða tekjuöflun til annars aðila en leyfishafa.
Skýrari kvaðir eru lagðar á um virkni fjareftirlitsbúnaðar og tilkynningarskyldu til Landhelgisgæslunnar ef búnaður bilar eða samband rofnar.

