Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

10. september 2026

Opnað fyrir umsóknir A-flokks úr makríl potti

Fiskistofa
2026

Skip í A-flokki geta sótt um viðbótarheimild í makríl til 15. september. Umsóknir um úthlutun skal senda á fiskistofa@fiskistofa.is þar sem fram kemur fyrir hvaða skip verið er að óska eftir úthlutun á.

Úthlutunin byggir á ákvæðum reglugerðar um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl. Samkvæmt reglugerðinni skal Fiskistofa skipta því magni sem ekki hefur verið úthlutað til B-flokks skipa, jafnt til skipa í A-flokki sem óska eftir úthlutun. Við birtingu þessarar tilkynningar eru 500 tonn í pottinum.

Verð aflaheimildanna er jafnt veiðigjaldi makríls hverju sinni eða 26,17 kr/kg samkvæmt auglýsingu um veiðigjald 2026.