1. júlí 2025
Eftirlit með ómönnuðum loftförum í júlí
Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í júlí og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur.
Fiskistofa biður því sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.
Nokkur atriði til að huga að:
Heimilt er að sleppa lífvænlegum hlýra.
Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

