Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

1. desember 2025

Eftirlit með ómönnuðum loftförum í desember

2025
Ómönnuð loftför

Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í desember og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur.

Mikilvægt er að sjómenn og útgerðaraðilar þekki vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.

Nokkur atriði til að huga að:

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum hlýra.

  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga.

  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

  • Ganga skal úr skugga um að aflinn sé lífvænlegur áður en honum er sleppt.

  • Skrá á tegund alls afla sem sleppt er ásamt áætlaðu magni í kílóum með rafrænum hætti í afladagbók eða snjallforrit.

Fiskistofa hvetur útgerðaraðila til að fræða áhafnir um meðferð afla og ítrekar að umgengni við afla þarf að stuðla að lífvænleika hans ef ætlun er að nýta framangreindar undanþágur.