Fara beint í efnið

Jafnréttisáætlun 2024-2027, jafnréttis- og jafnlaunastefna

Jafnréttisáætlun Fiskistofu

Jafnréttisstefna

Jafnréttisstefna Fiskistofu byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og annarra laga er snúa að jafnrétti, t.a.m. lög um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018. Hver starfsmaður skal virtur á grundvelli eigin verðleika og jafnréttisstefnan skal vera virk og sýnileg í framkvæmd. 

Markmið

Markmið jafnréttisáætlunar Fiskistofu er að koma á og tryggja fyllsta jafnræði á milli starfsfólks í starfsemi og rekstri stofnunarinnar. Með henni skal stuðla að því að allir starfsmenn fái notið sín í starfi á jafnréttisgrundvelli án tillits til kyns, kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna, kyntjáningar eða annarra slíkra persónubundinna atriða. Jafnréttisáætlunin nær til allra starfsmanna Fiskistofu og ber sérhverjum starfsmanni að framfylgja henni. 

Fiskistofustjóri ber ábyrgð á jafnréttisáætlun Fiskistofu og að eftir henni sé farið í hvívetna. Áætlunin gildir frá maí 2024 til maí 2027 en skal þó endurskoðuð eftir atvikum.

Fiskistofa kappkostar að fara í hvívetna að ákvæðum laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og öðrum lögum og reglum sem þýðingu hafa hvað varðar jafnrétti og jafnræði.

Helstu stefnumið Fiskistofu í jafnréttismálum eru:

  • Að mismuna ekki á grundvelli kyns, kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna, kyntjáningar eða annarra slíkra persónubundinna atriða:

    • við ráðningu í störf eða við ákvarðanatöku um framgang í starfi.

    • við ákvörðun launa og annarra starfstengdra kjara.

    • við ákvarðanir á sviði símenntunar.

  • Að stuðla að jafnri skiptingu kynja í stjórnunarstörfum, nefndum, starfshópum og almennum störfum eftir því sem aðstæður leyfa.

  • Að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og fjölskyldulíf eins og kostur er. 

  • Að bjóða upp á sveigjanlegan vinnutíma eftir því sem við verður komið miðað við eðli starfs hverju sinni.

  • Að tryggja starfsmönnum traust vinnuumhverfi.

  • Að mismuna starfsmönnum ekki á nokkurn hátt á grundvelli kyns, kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkennum eða kyntjáningar.

  • Orðræða sem byggist á viðhorfsvanda gagnvart öðrum er ekki liðin.

  • Að koma í veg fyrir að starfsfólk verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni.

Jafnlaunastefna

Tilgangur með jafnlaunastefnu þessari er að allt starfsfólk njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.  Jafnlaunastefnan gildir fyrir allt starfsfólk Fiskistofu.

Fiskistofa leggur áherslu á jafnrétti í launum, sem og á öðrum sviðum. Stofnunin rekur jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST85:2012, jafnréttislaga og annarra laga og meginreglna um að starfsmönnum skuli greidd jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf óháð kyni.

Mat á verðmæti starfa

Hjá Fiskistofu eru til starfslýsingar um öll störf sem vistaðar eru í skjalakerfi Fiskistofu. Þar koma fram allir meginþættir starfs svo sem ábyrgðarsvið, helstu verkefni og kröfur um menntun. Jafnframt eru öll störf hjá Fiskistofu skilgreind í starfafjölskyldur. Þeir þættir sem horft er til við skilgreiningu starfafjölskyldna eru þeir þættir sem mynda meðal annars grunn að verðmæti starfa, til dæmis kröfur sem starf gerir til starfsmanns með tilliti til ábyrgðar, þekkingar og hæfni. Þau störf sem tilheyra sömu starfafjölskyldu er jafnan talin jafnverðmæt.

Launasetning og launaákvarðanir

Kjara- og stofnanasamningar eru grundvöllur að ákvörðunum launa hjá Fiskistofu. Jafnframt er mikilvægt að horfa til jafnlaunastefnu þessarar. Launasetning byggist á þáttum sem mynda grunn að verðmæti starfa, til dæmis kröfum sem starf gerir til starfsmanns með tilliti til ábyrgðar, þekkingar og hæfni. Jafnframt hafa inntak og eðli starfs, þekking, hæfni, ábyrgð, álag, mannaforráð, menntun, verkefni og fleira, áhrif á launasetningu. 

Launaákvarðanir skulu vera í samræmi við launabyggingu stofnunarinnar. Þær skulu vera í samræmi við gildandi samninga og studdar rökum svo tryggja megi að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Ákvarðanir um launabreytingar eru teknar af fiskistofustjóra í samráði við mannauðstjóra og viðkomandi sviðsstjóra. 

Jafnlaunastefna 

Fiskistofa fylgir í einu og öllu eigin stefnu í jafnréttismálum, íslenskum lögum sem varða jafnréttismál og jafnlaunakerfi stofnunarinnar sem miðar að því að standast allar kröfur jafnlaunastaðalsins  ÍST 85:2012.  Þannig tryggir stofnunin að allt starfsfólk hljóti sömu laun og kjör fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Ómálefnalegur launamunur er ekki liðinn innan Fiskistofu.

Til að framfylgja launastefnu og þar með jafnlaunastefnu Fiskistofu, skuldbindur stofnunin sig til að skjalfesta verklag jafnlaunakerfisins, innleiða, kynna, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins  í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins. Fiskistofa hefur innleitt verklag og skilgreint viðmið til ákvörðunar launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess óháð kyni, kynvitund eða af öðrum ástæðum sem ekki geta talist málefnalegar. 

Fiskistofustjóri og mannauðsstjóri rýna launasetningu starfa og laun starfsmanna að lágmarki árlega til að tryggja að samræmis sé gætt og greidd séu jöfn laun og sömu kjör fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Ef líkur eru leiddar að því að launamismunun sé til staðar og/eða annars konar mismunun er varðar réttindi starfsfólks skal fiskistofustjóri sýna fram á að aðrar ástæður en kyn hafi legið til grundvallar við ákvarðanir launa og/eða réttinda og grípa til viðeigandi ráðstafana komi annað í ljós.

Umfang og eðli starfa hefur áhrif á laun og ræðst af viðmiðum starfaflokkunar samkvæmt jafnlaunastaðli, svo sem þekkingu, hæfni, ábyrgð, álagi og persónubundnum þáttum samkvæmt stofnanasamningi. Það er sameiginleg ábyrgð stjórnenda að launaákvarðanir séu teknar í samræmi við stefnu þessa og þær byggðar á gagnsæjum og málefnalegum forsendum.

Til að framfylgja markmiðum jafnlaunastefnunnar mun Fiskistofa, meðal annars:

  • Skjalfesta og viðhalda jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og viðhalda vottun í samræmi við gildandi lagareglur um jafnlaunavottun á hverjum tíma.

  • Framkvæma launagreiningu að minnsta kosti einu sinni á ári í launagreiningartólinu Embla.

  • Vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur jafnlaunakerfis og bregðast við frábrigðum þegar þau koma upp.

  • Uppfylla skilyrði staðals um innri úttektir og rýni stjórnenda árlega. 

  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma.

  • Kynna stefnuna fyrir starfsmönnum. Stefna skal jafnframt vera aðgengileg í gæðakerfi stofnunarinnar. Stefnan skal einnig vera birt á ytri vef stofnunarinnar.

Jafnlaunastefnan er órjúfanlegur hluti af launastefnu Fiskistofu. 

Uppfært 22.04.2024 og samþykkt af yfirstjórn Fiskistofu