Vorfundur Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands
11. maí 2026
Vorfundur Fiskistofu og Landhelgisgæslu Íslands fór fram í Skógarhlíð síðastliðinn miðvikudag

100 ára afmælismerki Landhelgisgæslu Íslands
Á árinu fagnar Landhelgisgæslan 100 ára afmæli sínu, sem setur skemmtilegan og sérstakan svip á starfsemi hennar í ár.
Á fundinum var farið yfir helstu sameiginlegu verkefni stofnananna og áherslur í eftirlitsstarfi. Þar var meðal annars fjallað um:
eftirlit með lax- og silungsveiði,
strandveiðar og,
sameiginlegt sjóeftirlit.
Að auki voru rædd önnur málefni sem snúa að áframhaldandi samvinnu Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar.
Fundurinn undirstrikaði mikilvægi góðs samráðs milli stofnananna í því sameiginlega hlutverki að vernda og gæta auðlinda hafs og vatna.
