Upplýsingar um eftirstöðvar veiðiskyldu sendar í stafrænt pósthólf
25. júlí 2023
Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip og sent á starfrænt pósthólf þeirra aðila sem eiga skip sem enn hafa ekki uppfyllt veiðiskyldu, þ.e. að veitt 50% af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![fiskistofa fiskar i neti mynd](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Skip sem fá úthutað aflamark er skylt að veiða amk 50% af úthlutuðu aflamarki annars falla aflahlutdeildir skipsins niður. Hægt er að fá undanþágu frá veiðiskyldunni ef skip tefst frá veiðum í amk. 4 mánuði vegna tjóns eða meiriháttar bilana.
Fiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um skip sem enn hafa ekki uppfyllt veiðiskyldu, þ.e. að veitt 50% af úthlutuðu aflamarki og aflamarki sem flutt var af fyrra ári. Þeir aðilar sem eiga skip sem ekki hafa uppfyllt veiðiskyldu hafa fengið tilkynningu þess efnis sent inn á pósthólf viðkomandi á island.is. Alls fengu 145 aðilar tilkynningu um að ekki væri búið að uppfylla veiðiskylduna.
Upplýsingar um veiðiskyldu skipa eru fundnar með því að fletta upp skipi í gegnum hnappinn skipaleit á vefsíðu Fiskistofu eða á gagnasíðum. Staða veiðiskyldu fyrir skipið sést þegar ýtt er á hnappinn aflamark.