Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Uppfærðar upplýsingar um upprunagreiningu laxa sem veiðst hafa í ám

11. september 2025

Sameiginleg frétt Fiskistofu, Matvælastofnunar, og Hafrannsóknastofnunar um stöðu upprunagreininga laxa sem veiðst hafa.

Samtals hafa sýni úr 30 löxum verið send til erfðagreiningar. Af þessum eru tíu fiskar staðfestir eldislaxar og því 20 sem reyndust villtir. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Sýni úr þremur löxum eru í erfðagreiningu.

Rakning stendur yfir á staðfestum eldislöxum og enn benda niðurstöður til sameiginlegs uppruna níu laxa úr Dýrafirði. Svo virðist sem einn staðfestur eldislax hafi annan uppruna og rannsókn stendur yfir á uppruna þess fisks. Stofnanirnar þrjár starfa áfram saman að rannsókn málsins og veita upplýsingar þegar frekari niðurstöður liggja fyrir.

Áfram er mikilvægt að fylgjast vel með því hvort fleiri laxar með eldiseinkenni komi fram í ám og veiðimenn eru sérstaklega beðnir að vera vakandi yfir eldiseinkennum á veiddum löxum. Nánari upplýsingar um einkenni eldisfiska má sjá á mynd frá Hafrannsóknastofnun.

Ef lax með eldiseinkenni veiðist er þess óskað að veiðiaðili skili fisknum í heilu lagi til Hafrannsóknastofnunar til rannsókna og erfðagreiningar.