Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Umsókn um leyfi til selveiða

2. október 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2025.

Í Reglugerð um bann við selveiðum segir að selveiðar séu óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.

Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2024.

Umsóknum skal skila á eyðublaði sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með bréfpósti á heimilisfangið: Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.