Umsókn um leyfi til selveiða
19. ágúst 2022
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2023.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Fiskistofa logo](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=774&fm=webp&q=80)
Fiskistofa vísar til reglugerðar nr. 1100/2019 um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um bann við veiði á öllum selategundum.
Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.
Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag.
Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2023.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2022.
Umsóknum skal skila á eyðublaði sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með bréfpósti á heimilisfangið: Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð 600 Akureyri.