Umsókn um byggðakvóta 2021/2022 (4)
21. febrúar 2022
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Fiskistofa logo](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=774&fm=webp&q=80)
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. Auglýst er eftir umsóknum fyrir:
Stöðvarfjörð
Umsóknargátt fyrir byggðakvóta
Eyðublað fyrirstaðfestingu á vinnslusamning
Leiðbeiningar:
Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina hér að ofan. Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um.
Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.
Staðfestingu á vinnslusamningi skal skila sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um byggðakvóta.
Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi þar sem við á.
Umsókn og vinnslusamning er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina.
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022