Fara beint í efnið

Umsókn um byggðakvóta 2021/2022 (2)

11. febrúar 2022

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Fiskistofa logo

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. Auglýst er eftir umsóknum fyrir:

  • Hrísey

Umsóknargátt fyrir byggðakvóta

Eyðublað fyrirstaðfestingu á vinnslusamning

Leiðbeiningar:

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum gáttina  hér að ofan.  Til þess að opna umsóknareyðublaðið þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. 

Staðfesting á samningi um vinnslu afla skal vera undirritaður og staðfestur af sveitarfélagi.

Staðfestingu á vinnslusamningi skal skila sem fylgiskjali í umsóknargátt á sama tíma og sótt er um byggðakvóta.

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi þar sem við á.

Athugið að umsókn og vinnslusamning er skilað í gegnum rafrænu umsóknargáttina. 

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2022