Fara beint í efnið

Túnfiskur sem meðafli

24. júní 2024

Túnfiskur getur veiðst sem meðafli í uppsjávarveiðum því viljum við vekja athygli á að það þarf að tilkynna allan túnfiskafla til Fiskistofu sem fyrst.

fiskistofa fiskar i neti mynd

Túnfiskmeðafli reiknast af túnfiskkvóta Íslands og er allur túnfiskur tilkynningaskyldur til ICCAT, Alþjóðaráðsins um varðveislu Atlantshafstúnfisks. 

Upplýsingar um túnfisk sem meðafla sendast á eyðublaði fyrir túnfiskafla á fiskistofa@fiskistofa.is.