Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sumarafleysingastarf við sjóeftirlit og gagnaöflun

16. apríl 2025

Fiskistofa leitar að tveimur áreiðanlegum og öflugum einstaklingum til starfa í sjóeftirliti í sumar.

Starfið felst eingöngu í verkefnum á sjó og hentar sérstaklega þeim sem hafa reynslu af sjómennsku og eru tilbúnir að vinna í krefjandi og fjölbreyttum aðstæðum. Um er að ræða tímabundin störf frá júní til ágústloka 2025.

Starfshlutfall er 100 % með starfsstöð á Akureyri og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Sameykis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í eftirlitsferðum með fiskiskipum í íslenskri efnahagslögsögu.

  • Skráning gagna, lengdarmælingar og kvörnun.

  • Samræming við skráningar í afladagbækur og mat á aðstæðum til að leggja til lokanir veiðisvæða.

  • Önnur tilfallandi verkefni á vettvangi sjóeftirlits.

Hæfniskröfur

  • Sjóreynsla er skilyrði.

  • Reynsla af vinnu um borð í vinnsluskipum er kostur.

  • Góð færni í skráningu og meðhöndlun gagna.

  • Góð íslenskukunnátta kostur.

  • Góð líkamleg og andleg heilsa; geta til að vinna í lengri sjóferðum.

  • Nákvæmni, sjálfstæði og fagmennska í störfum.

  • Hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 6. maí 2025 og allar nánari upplýsingar er að finna á Starfatorgi.