Fara beint í efnið

Strandveiðar stöðvaðar frá og með 12. júlí 2023

11. júlí 2023

Síðasti dagur strandveiða er í dag og veiðarnar verða stöðvaðar frá og með miðvikudeginum 12. júlí 2023.

fiskistofa skyndilokanir mynd

Öll strandveiðileyfi falla niður þegar strandveiðar verða stöðvaðar, miðvikudaginn 12. júlí 2023.

Skipi sem er með strandveiðileyfi verður því heimilt að halda til veiða á morgun af því gefnu að það hafi verið með veiðileyfi áður það fékk strandveiðileyfi.

Strandveiðileyfi felur ekki í sér almennt veiðileyfi þannig að ef skip var í núllflokki áður en það fékk strandveiðileyfi þarf að sækja um almennt veiðileyfi áður en farið er til veiða.

Hægt er að skoða hvort skip sé með veiðileyfi á vefsíðu Fiskistofu undir skipaleit en athugið að strandveiðileyfið gæti verið inni í nokkra daga þrátt fyrir að búið sé að fella það úr gildi.