Fara beint í efnið
Fiskistofa Forsíða
Fiskistofa Forsíða

Fiskistofa

Skotvopni beitt á dróna Fiskistofu

26. nóvember 2024

Skotið var á dróna sem eftirlitsmaður Fiskistofu notaðist við er hann sinnti eftirliti í gær.

fiskistofa drónaeftirlit mynd

Þegar skipverjar tóku eftir drónanum sveimandi yfir, fór einn þeirra inn í stýrishús skipsins og greip þar til skotvopns og skaut þremur skotum að drónanum frá skipinu. Eftirlitsmaður Fiskistofu kveikti á upptöku eftir að skoti hafði verið hleypt af og náði verknaðinum á myndband.

Atvikið var tilkynnt til lögreglu sem tók á móti skipinu við löndun og var Fiskistofa í sambandi við Landhelgisgæsluna sem brást hratt og vel við. Landhelgisgæslan hafði einnig samband við lögreglu og tók rannsóknarlögreglumaður skýrslur á vettvangi.

Fiskistofa lítur atvikið mjög alvarlegum augum og metur það sem mikla ógn við störf og öryggi eftirlitsmanna.
Að skjóta úr skotvopni að dróna Fiskistofu getur fallið undir brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga auk brota á vopnalögum. Með þessari háttsemi var eftirlitsmaður Fiskistofu hindraður við framkvæmd skyldustarfa sinna með alvarlegri og ógnandi verknaðaraðferð. Fiskistofa kemur til með að fylgja málinu eftir með kæru á hendur skipverjunum til lögreglu.