Skot á dróna Fiskistofu talið brot gegn valdstjórninni
2. júlí 2026
Héraðsdómur Vestfjarða hefur sakfellt mann fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hann skaut á dróna Fiskistofu sem notaður var við lögmætt veiðieftirlit.

Málsatvik voru þau að þann 25. nóvember 2024 notaði eftirlitsmaður Fiskistofu dróna við eftirlit með veiðum báts. Meðan á eftirlitinu stóð skaut sjómaður um borð í bátnum með haglabyssu á dróna Fiskistofu og kærði Fiskistofa í kjölfarið athæfið til lögreglu.
Í dómi Héraðsdóms Vestfjarða, mál nr. S-80/2025, var talið sannað að ákærði hefði vitað eða mátt vita að hann væri að skjóta á dróna Fiskistofu. Að mati dómsins var tilgangurinn að hindra eftirlit með veiðum bátsins.
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot á vopnalögum þar sem hann hafði ekki gilt skotvopnaleyfi. Refsing hans var ákveðin sekt til ríkissjóðs og skotvopnið gert upptækt.
Mikilvæg niðurstaða fyrir veiðieftirlit
Niðurstaða dómsins staðfestir að aðgerðir sem miða að því að hindra eða spilla lögmætu eftirliti stjórnvalda eru refsiverðar. Þá undirstrikar dómurinn að notkun nýrrar tækni, svo sem dróna við veiðieftirlit, njóti sömu verndar og hefðbundnar eftirlitsaðferðir.
Með niðurstöðunni eru send skýr skilaboð um að árásir á eða íhlutun gagnvart eftirlitsbúnaði stjórnvalda verði ekki liðin.
Fordæmisgildi fyrir framkvæmd eftirlits
Málið hefur fordæmisgildi fyrir framkvæmd veiðieftirlits og styrkir heimildir Fiskistofu til að nýta tækninýjungar við eftirlitsstörf. Dómurinn styður þannig við markmið um að tryggja að farið sé að reglum um sjálfbærar og lögmætar veiðar.
Jafnframt er niðurstaðan til þess fallin að auka öryggi eftirlitsmanna við störf sín og efla traust á eftirlitskerfinu í heild.
