Skiptimarkaður með aflamark - tilboð óskast
6. mars 2023
Skiptimarkaður með aflamark er opinn frá 6. til 7. mars.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6VggvIf44MHo3tS9trmFbp/dccebecce7378cac9f342ad7f18f14c9/net_hendur.png?w=50&fm=webp&q=80)
![net hendur](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6VggvIf44MHo3tS9trmFbp/dccebecce7378cac9f342ad7f18f14c9/net_hendur.png?w=774&fm=webp&q=80)
Skiptimarkaðurinn opnar í dag mánudaginn 6. mars 2023 kl. 14:00 en lokar þriðjudaginn 7. mars 2023 kl 14:00.
Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 435,37 kr/kg. Hægt er að gera tilboð í neðangreinda tegund fyrir aflamark í þorski:
Tegund | Þorskígildi | Magn | Eining |
---|---|---|---|
Loðna | 0,11 | 7.806 | Tonn |
Tilboð er sent í gegnum UGGA. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Staðfesting er send sjálfkrafa um móttöku tilboðs. Umsækjendur geta afturkallað/hætt við tilboð en tekið er fram að afturköllun á tilboði eftir tilboðsfrest er óheimil.