Fara beint í efnið

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

12. janúar 2022

Samkvæmt 4. gr. relugerðar nr. 920/2021 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022, með síðari breytingum, auglýsir Fiskistofa eftir tilboðum í skipti á aflamarki.

Fiskistofa logo

Samkvæmt 4. gr. relugerðar nr. 920/2021  um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022, með síðari breytingum, auglýsir Fiskistofa eftir tilboðum í skipti á aflamarki.

Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 332,55 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn hefur þegar verið opnaður. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu (http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/) ber að greiða 11.640 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

 

Fisktegund

Þíg

Aflamark

 Eining

Þorskur í norskri lögsögu

1,0

289.164

kg

 

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er óheimil. Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar 920/2021 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 18. janúar 2022.