Skipti á aflamarki - tilboð óskast
22. janúar 2024
Skiptimarkaðurinn opnar í dag, mánudaginn 22. janúar 2024 kl. 14:00. Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 mánudaginn 29. janúar 2024.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![fiskistofa fiskar i neti mynd](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/4Lu9c876hE0Lzq1G1YHJYo/2d3b4d2cd8dc55b4f16afdcbf77f5c5f/fiskistofa_fiskar_i_neti_mynd.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í neðangreint aflamark í tilgreindri tegund í skiptum fyrir aflamark í þorski. Samkvæmt 4. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024.
Fisktegund | Þorskígildisstuðlar | Magn í boði |
---|---|---|
Norsk íslensk síld | 0,15 | 3.225 tonn |
Þorskur í norskri lögsögu | 1 | 182.984 kg |
Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 487,67 kr/kg.
Tilboð er sent í gegnum nýtt tilboðsmarkaðskerfi Fiskistofu. Prófkúruhafar eða einstaklingar sem veitt hefur verið umboð, sjá leiðbeiningar, geta lagt inn tilboð á tilboðsmarkaði á notendavænan og einfaldan hátt.