Sérveiðileyfi 2022/2023
17. ágúst 2022
Vakin er athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Fiskistofa logo](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3W68zG8kVqVY7DU1qHxVEA/4d403503b05488cc8385578a92ef399e/fiskist-merki_2x.png?w=774&fm=webp&q=80)
Vakin er athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.
Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst nk.
Vegna komandi fiskveiðárs 2022/2023 þarf að sækja sérstaklega um eftirtalin leyfi og er það gert í Ugga, þjónustugátt Fiskistofu:
Dragnótarveiðileyfi
Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
Leyfi til veiða á beitukóngi *
Leyfi til veiða á kröbbum
Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)
* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.