Fara beint í efnið

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sjóstangveiðimót

13. nóvember 2023

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til að halda opinber sjóstangaveiðimóta á fiskveiðiárinu 2023/2024.

madur net

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um leyfi til að halda opinber sjóstangaveiðimót á fiskveiðiárinu 2023/2024, samkvæmt reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangveiðimótum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. og senda á umsóknir ásamt fylgigögnum á netfangið fiskistofa@fiskistofa.is

Fylgigögn með umsókn:

  • samþykktir félagsins

  • upplýsingar um reglur um félagsaðild.

Umsókn telst einungis móttekin ef sjálfvirk staðfesting Fiskistofu á móttökunni hefur borist sendandanum.